{"product_id":"salgaeslan-einbeittur-brotavilji","title":"Sálgæslan - Einbeittur brotavilji","description":"\u003cp class=\"has-small-font-size\" data-mce-fragment=\"1\"\u003eNý fjórtán laga plata frá Sálgæslunni, sérverkefni saxófónleikarans Sigurðar Flosasonar sem er jafnframt höfundur allra laga og texta plötunnar. \u003cem data-mce-fragment=\"1\"\u003eEinbeittur brotavilji \u003c\/em\u003eer þriðja breiðskífa Sálgæslunnar.\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"has-small-font-size\" data-mce-fragment=\"1\"\u003eTónlist plötunnar teygir sig í ýmsar áttir og hvílir einhversstaðar á mörkum jazz, blús og sálartónlistar. Söngvarar á plötunni eru sjö talsins, en það eru Helgi Björnsson, KK, Andrea Gylfadóttir, Stefán Hilmarsson, Friðrik Ómar, Jógvan Hansen og Rebekka Blöndal.\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"has-small-font-size\" data-mce-fragment=\"1\"\u003eSegja má að platan sé óður til íslenska smáglæpamannsins en brennivínsberserkir, eltihrellar, siðleysingjar og smákrimmar eru aðalpersónur margra laganna. Þá kemur margbreytileiki mannlegrar kynhegðunar einnig við sögu.\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"has-small-font-size\" data-mce-fragment=\"1\"\u003eAuk Sigurðar sem leikur á saxófón spilar Þórir Baldursson á Hammond-orgel, Einar Scheving á trommur og Andrés Þór Gunnlaugsson á gítar. Aðstoðarhljóðfæraleikarar eru Ari Bragi Kárason á trompet, Samúel J. Samúelsson á básúnu, Matthías Stefánsson á fiðlu og Bryndís Björgvinsdóttir á selló. Hafþór „Tempó“ Karlsson annaðist hljóðritun, blöndun og hljómjöfnun. Sigríður Hulda Sigurðardóttir hannaði umslag.\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"has-small-font-size\" data-mce-fragment=\"1\"\u003e \u003c\/p\u003e","brand":"Alda Music","offers":[{"title":"CD","offer_id":51937617576214,"sku":"ree1790026494842","price":18.47,"currency_code":"USD","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0994\/8862\/9014\/files\/salgaeslan---einbeittur-brotavilji_1.jpg?v=1790026499","url":"https:\/\/tireinflator.shop\/products\/salgaeslan-einbeittur-brotavilji","provider":"My Store","version":"1.0","type":"link"}